Einingaverksmiðjan er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í framleiðslu á forsteyptum einingum. Fyrirtækið hefur starfað óslitið síðan 1994 og býr því að mikilli þekkingu og færni á þessu sviði.
Framleiðsluvörur eru ýmsar gerðir forsteyptra eininga til íbúðarhúsa, iðnaðar- og skrifstofubygginga. Fyrirtækið veitir ráðgjöf um notagildi eininga og býður upp á þjónustu við hönnun heildarlausna. Við gerum okkar besta í að veita upplýsingar og ráðgjöf sem er hagkvæm fyrir þig sem kaupanda vörunnar.